Sagan okkar

Velkomin til Skagafjarðar

Hver erum við?

Hraun á Skaga er fjölskyldubýli staðsett nyrst á Skaga í Skagafirði. Sumir kannast við bæjarnafnið vegna veðurathugunarstöðvarinnar sem þar er, og kannski ekki síður vegna bjarndýrsins sem gékk á land þar árið 2008. Í meira en öld hefur ein af undirstöðum búskaparins á Hrauni verið æðarrækt ásamt sauðfjárrækt, silungsveiði og nýting á rekavið.
Upphafið

Þetta hófst allt…

Vorið 1914, þegar Steinn Leó Sveinsson (1886-1957) gekk meðfram ströndinni á Hrauni og sá þar þrjár æðakollur á hreiðrunum sínum. Í þá daga var fæða af skornum skammti og algengt var að tína egg úr hreiðrum villtra fugla. Steinn hins vegar ákvað að vernda æðarkollurnar. Útfrá þessum þremur æðakollum hefur æðavarpið stækkað jafnt og þétt. Telja fuglarnir nú fjórum ættliðum seinna um 2.000 – 3.000 pör af æðarfuglum sem koma á hverju ári að Hrauni til að verpa.
Í dag

Fjölskylduverkefni

Rögnvaldur Steinsson (1918-2013) ásamt eiginkonu sinni Guðlaugu Jóhannsdóttur (1936-) tóku við búinu af föður Rögnvaldar. Þau voru bæði heilluð af æðarfuglunum og reyndu ýmislegt til að laða að fuglana m.a. með því að reisa litríka fána, útbúa bjöllur og vindskýli. Rögnvaldur lét aldurinn ekki stoppa sig og 94 ára hélt hann ótrauður áfram að heimsækja æðarvarpið og horfa yfir vel unnið ævistarf. Guðlaug er enn að og er ómetanlegur viskubrunnur þegar kemur að æðarfuglunum og æðarvarpinu sjálfu. Ábúendur á Hrauni á Skaga í dag eru bræðurnir Steinn Leó Rögnvaldsson (1957-) og Jóhann Eymundur Rögnvaldsson (1962-) ásamt fjölskyldum sínum. Á hverju ári kemur svo stórfjölskyldan saman til að vernda æðarfuglana og vinna úr æðardúninum, svo úr verður einn verðmætasti og umhverfisvænasti dúnn á markaðnum.

Sjá myndband

Ávöxtur erfiðisins

Æðardúnssængurnar okkar

Mest allur íslenskur æðardúnn er en í dag að stærstum hluta hrá útflutningsvara, sendur í svörtum ruslapokum til hinna og þessara heildsala, fyrir einungis örlítinn hluta af loka söluverði. Þá hefur gætt misræmis milli heimsframleiðslu á æðardún og sölu, sem kyndir undir þá tilgátu að æðardúnssængur sem ekki séu 100% séu seldar sem slíkar.

 

Þetta tvennt ásamt áhuga okkar á að efla íslenskt handverk, útbúa einstakar hágæða æðardúnssængur og eiga bein samskipti við viðskiptavini okkar gerði það að verkum að við ákváðum að hanna og búa til okkar eigin æðardúnssængur. Þær eru handgerðar af okkur með ást og umhyggju úr umhverfisvænni bómull og fylltar með 100% hreinum hágæða æðardún svo þú fáir þann notalega svefn sem þú átt skilið. Sængurnar eru merki þess fallega og einstaka sambands sem fjölskyldan á Hrauni á við æðarfuglana sem þar dvelja.

Skoða Sængur

Ýtið á hnappin að neðan til þess að skoða æðardúnsængurnar. Endilega heyrið í okkur með spurningar. Hafið samband á netfangið [email protected] eða í síma 835 9600.